NF bekkurinn okkar

Loksins komið blogg fyrir bekkinn okkar!!!!

25.08.2008 11:02:51 / Kvennó

Lítill drengur kominn í heiminn

Ég ákvað að skella inn einni færslu hérna á síðuna, þó það séu nú fáir sem skoði hana ....  En bara svona rétt til að láta ykkur vita að það væri kominn lítill drengur í heiminn! Hann kom í heiminn 9. júli, rúmum 4 vikum fyrir tímann. Hann var 12 merkur (3080 gr) og 47,5 cm. Hann var ósköp lasinn þegar hann fæddist og fór strax á vökudeildina og var settur í öndunarvél 2 klst gamall. Hann stóð sig þó eins og hetja og losnaði fljótt úr henni og var fljótur að jafna sig á veikindunum. Hann var í 10 daga í góðu yfirlæti á vökudeildinni hjá henni Elfu Björk okkar sem fékk að hugsa um hann nokkrar nætur :)

Nú er prinsinn alveg að verða 7 vikna gamall og gengur ljómandi vel hjá okkur, smá uppákomur af og til en það er nú bara eitthvað sem við má búast! Heimilislífið er smám saman að komast í samt lag, stóri bróðir að jafna sig á þessu öllu saman hægt og rólega, enda engin smá breyting á tilverunni þegar lítill bróðir kemur í heiminn! Um helgiina var svo litli prinsinn var skírður og fékk hann nafnið Arnar Logi :)

Ég ætla að skella inn einni mynd af prinsinum og þeim bræðrum!
Þið getið líka kíkt á heimasíðuna þeirra á barnalandi; www.arondadi.barnaland.is og séð þar fleiri myndir! Það þarf reyndar lykilorð á síðuna en ekki vera feimin að óska eftir því!

Ég býð ykkur svo í hitting seinna í haust :lol:

Kveðja; Sigríður ... sem er núna stolt tveggja stráka mamma!!!




» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 22:25:29 / Kvennó

Laugardaguinn mikli

Jæja núna koma smá upplýsingar fyrir reunionið.  Ákveðið var á hittingnum síðasta fimmtudagskvöld að grilla saman áður en haldið verður af stað í Sjálfstæðissalinn á Seltjarnarnesinu. 

Mæting er heim til mín kl 18 en ég á heima í Eiðismýri 2 á Seltjarnarnesi erum ca. 5 mín að labba í salinn síðan

Við erum búnar að redda kjöti og kjúkling á grillið, salati og karteflum og mun hver og einn þurfa að leggja inn á Laufey þegar við vitum hvað þetta verður mikil upphæð. Sem sagt hver og einn þarf bara að koma með áfengi ef fólk ætlar þar að segja að djúsa :)

Hittumst hress á laugardaginn
Kveðja Elfa Björk

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 20:17:17 / Kvennó

Reunion

Hæ öllsömul :)

Þá er komið að 5 ára Reunion sem haldið verður laugardaginn 7. júní.  Lilja Hrönn úr NÞ og Stella úr NB hafa takið það að sér og sitja núna sveittar að gera þetta sem eftirminnilegast.  Það er komin heimasíða fyrir þennan viðburð www.blog.central.is/utskrift2003 Endilega kíkið á þetta.

Eg var að velta því fyrir mér hvort að við verðum ekki að fara að koma með einhverja hugmyndir um það hvað við getum gert saman um daginn :o) væri það ekki skemmtilegt að gera eitthvað saman :) 
Hvað segiði???

Kveðja Elfa Björk


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 19:55:09 / Kvennó

Nýárshittingur!

Halló skalló!

Ég veit ekki hvort að þessi síða sé alveg dauð, en það sakar ekki að athuga hvort að það verði einhver viðbrögð við þessari færslu. Ég hafði nú planað að halda jólahitting en var nokkuð upptekin sjálf í jólaboðaflóðinu (ég mætti í 9 boð!) að ekki gafst tími til að halda hitting.

En núna langar mig til að bjóða ykkur til mín næsta miðvikudag, 16. janúar, í nýja pleisið mitt í Hafnarfirðinum. Heimilisfangið er Brekkugata 26, kjallari. Það er fínt að mæta svona um átta-leytið.

Vonandi mæta sem flestir :)

Tataaaa

Tinna Rós

 p.s. Við erum með tvo ketti, þannig að ef einhver er með ofnæmi þá er kannki vissara að taka ofnæmistöflu áður en mætt er á staðinn. 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 10:01:19 / Kvennó

Hausthittingur

Halló

Ég veit ekki hve margir kíkja enn inn á þessa síðu en mér datt nú samt í hug að henda inn færslu. Þannig er mál með vexti að tímabært er að halda bekkjarhitting (síðast hittumst við um jólin í fyrra og örugglega fullt af krassandi hlutum búnir að gerast síðan þá;). Alllavega pælingin er að hittast á næsta sunnudaginn (16. september) heima hjá mér í Krummahólum 6, íbúð 6C kl 20:00, borða heil ósköp og spjalla enn meira. Ég held að "pálínuboð" eins og vanalega sé góður kostur, allavega nenni ég ekki að standa á haus við að baka. Sem sagt sjáust á sunnudag vonandi sem flest og við getum reynt að rotta okkur saman um hver á að koma með hvað ...ég skal baka köku.

mbk, Mæja


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 21:39:27 / Kvennó

Gleðileg jól :)

Elsku "fyrrverandi" bekkjarfélagar.

Vildi bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Kv. Sigríður (sem beilaði á jólahitting:(...)


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 11:27:42 / Kvennó

Hmm.... lélegustu bloggarar í heimi?!?

Ég bara varð að skipta um færslu hérna hjá okkur! Verður víst seint sagt um bekkinn okkar að við séum dugleg í blogginu.... :S

Samt ótrúlegt hvað það eru margir sem koma hérna inn á hvejrum degi, komnir 56 í dag og klukkan ekki orðin hádegi! Kannski það sé bara að því svo margir eru í prófum og les maður þá ekki allt sem hægt er að lesa nema skólabækurnar!?!?

Spurning um hitting e-n tíman fljótlega? Kannski í byrjun janúar til dæmis? Hvernig lýst ykkur á það? Hrikalega langt síðan við hittumst síðast. Hvernig er það með ykkur sem eruð í útlöndunum.... verðið þið ekki e-ð heima um jólin?

Jæja.... ætla að kíkja í skólabækurnar ;)

Kv. Sigríður


» 13 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 08:30:25 / Kvennó

Kveðjuóhóf

Ævinlega margblessuð,

Þó ég viti að fáir (enginn) skoði þessa síðu fann ég mig knúna til að henda hérna inn tilkynningu ef ske skyldi að einhver ráfaði hér inn. Ég ætla að halda smá kveðjuhóf annað kvöld, laugardagskvöldið 26. ágúst, áður en ég fer til Finnlands (eftir viku!) og langar að þið komið öll :D. Mæting milli 20 og 21 - þið vitið hvar ég á heima!

Guðaveigar í boði!

kv. Laufey


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 16:50:55 / Kvennó

jæja Föstudagskvöldið???

Sælar dömur NF :)

 

Ég var beðin um að koma herna inn færslu þar sem að Eygló sem var í NB bekknum er að fara að halda HJÁLPARTÆKJAKYNNINGU heima hjá sér.  Rautt freiðivín verður í boði og endar þetta á svaka partýi væntanlega.

 

 



Endilega komiði þær sem geta og látið mig vita ef þið ætlið að koma svo að hægt se að vita nokkurn veginn þann fjölda sem kemur og til að konan viti hvað hún þarf að koma með mikið DÓT með sér.  

 

 



Stelpur nuna er tækifærið að fá sér einn DILDÓ svona til að hressa upp á lífið hehe

 

 



Kveðja Elfa Björk


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 09:18:25 / Kvennó

PARTÝ-PARTÝ-PARTÝ

Skilaboð til þeirra sem ég náði ekki í síma í gær og ég hef ekki númerið hjá:

Partý hjá frúnni á morgun, laugardag. Mæting upp úr níu og heimilisfangið er Frostafold 23. Vonast til að sjá sem flesta - voðalega langt síðan ég hef knúsað ykkur öll!

Kv. Laufey


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 19:30:40 / Kvennó

Halló NF 2003!

Hæ allir!
Heyrðu, ég er að útskrifast næsta laugardag úr spænsku frá HÍ og vil endilega bjóða ykkur í útskriftarveisluna mína :). Vona að sem flestir geti mætt, þó að ég viti af reynslu hvað er erfitt að smala öllum saman!
En mætingin er á þessum týpíska partý- tíma.. svona um níu leytið og svo verður bara partey partey!!
Heimlisfangið, fyrir þá sem ekki vita er Háteigsvegur 31, íbúð 205.
Sjáumst!
Tinna Rós

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 22:07:33 / Kvennó

Bannað að vera edrú...!

Mér var falið það mikilvæga hlutverka að tilkynna ykkur kæru fyrrum bekkjarfélagar að hann Finnur okkar ætlar að halda partý á laugardaginn. Allir skemmtilegir kvenskælingar velkomnir og er það algert skilyrði að fá sér í glas og vera í stuði. Ég er með númerið hjá svo fáum þannig að þið verðið að láta þetta berast til allra svo enginn verði útundan. Komin tími til að við skemmtum okkur öll saman, allt of langt síðan síðast.

Fyrir hönd Finns

Maríanna


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 15:04:06 / Kvennó

Loksins ákveðið.

Hæ hæ
Ég held að það henti mér betur að hafa þetta á miðvikudaginn, er boðið í mat á sunnudag. Þannig að allir eru velkomnir til mín um klukkan 8 á miðvikudagskvöldið. Að sjálfsögðu verður þetta með hefðbundnu sniði þannig að allir koma með eitthvað. Það væri kannski sniðugt að skrifa hérna inn hvað þið ætlið að koma með þanniga ð allir komi ekki með það sama. Ég held að ég komi með köku:D
Vonandi komast sem flestir því ég hlakka svooo til að hitta alla.
Ég á heima í Bólstaðarhlíð 28, rétt hjá Tinnu Rós.
Ef einhver er með númerið hjá öllum má alveg láta mig vita svo ég geti sent sms á fólkið því ég held að ég sé með mjög fá númer.
Hlakka til að sjá ykkur:haha:
Jóhanna

» 18 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 17:21:36 / Kvennó

Næsti hittingur

Jæja gott fólk þá er það næsti hittingur. Ég var að spá í að bjóða ykkur til mín annaðhvort á sunnudag (21. maí) eða miðvikudag (24. maí). Komist þið þá? Veit að það komast aldrei allir en vonandi sem flestir:lol:

Allir að segja hvenær þeir komast sem fyrst svo við getum ákveðið þetta:!::!:

Kv. Jóhanna

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 21:22:24 / Kvennó

Úfff.....

Jæja... spurning hvor það sé ekki kominn tími á nýja færslu hérna!!! Hin búin að vera ansi lengi í gangi :S

En hvernig er það annars??? Er ekkert spennandi að frétta af neinum?? Engin börn á leiðinni og enginn að fara til útlanda eða gera e-ð skemmtilegt ;)

Endilega koma nú með smá pistil....

Vona að þið hafið haft það gott um páskana.... og borðað yfir ykkur af gómsætum páskaeggjum:)

Kv. Sigríður


» 20 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Myndir NF